Ljósmyndir 2026
Við karlar fengum í heimsókn fjóra pilta þá Mikael Sæþórsson, Óliver Gísla Þorrason, Þorstein Breka Pálsson og Fróða Vattnes Björnsson sem eru nemendur í Fjölbrautarskóla Garðabæjar. Þeir voru að vinna að verkefni í frumkvöðlafræði. Kennararnir Steindór og Helgi Már veittu þeim smá tilsögn við verkefnið sem var vínflöskuhaldari, sannkallað jafnvægistól.
Nokkrar myndir frá námskeiði í útskurði þar sem Anna Lilja Jónsdóttir útskurðarmeistari sá um kennsluna. Myndir: SVG
Frá leðurvinnunámskeiði sem haldið var um mánaðarmótin janúar og febrúar. Myndir: SVG
Stjórnarmenn og aðrir félagar unnu að því að smíða véla og vinnuborð bæði í vélasal og föndursal. Myndir: SVG