Ljósmyndir 2022
Stjórnin stóð fyrir aðventukaffi 9. desember, Jói bakaði pönnukökur og sumir karlar lögðu til kökur á borðin. SVG
Í nóvember 2022 var haldið námskeið í hnífasmíði og var notað stál frá Englandi og einnig úr hörðum hjólsagarblöðum, hér eru nokkrar myndir frá námskeiðinu. SVG
Þessar myndir tók Jón Sigurgeirsson á opna húsinu okkar 8. október
12. október, frá frábæru námskeiði í skyndihjálp sem Guðni sá um. Ég hefði ekki viljað missa af þessu !!! SVG
8. október 2022, myndir frá opnu húsi karla í skúrum Hafnarfirði. SVG
28. ágúst 2022 Það var opið hús hjá Körlum í skúrum Mosfellsbæ og tók undirritaður nokkrar myndir þar og þáði kaffi og kökur í heimsókninni. SVG
27. ágúst 2022 Sævar Karl félagi okkar Karla í skúrum Hafnarfirði var með málverkasýningu í SÍM salnum í Hafnarstræti í ágúst 2022 og var hún glæsileg. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni. SVG
26. ágúst 2022 Þeir feðgar Gunnar og Anton hafa endurnýjað myrkraherbergið og gert það með miklum sóma, og er allt að verða klárt, menn eru spenntir að hefjast handa með framköllun og stækkun mynda. SVG
Jakob hefur hér lokið við að smíða þennan forláta bekk sem hann ætlar að hafa við sumarbústað sinn. 11. ágúst 2022. SVG
Myndir frá hnífasmíðanámskeiði sem Steindór sá um í apríl 2022
Apríl, Alexander smíðar einn bátinn enn.
Félagsfundur 8. apríl. Fab lab sem er staðsett í FB Breiðholti komu í heimsókn og sýndu ýmislegt spennandi.